
Lappset-leiktækin eru hágæða útileiktæki, framleidd samkvæmt samevrópsku öryggisstöðlunum EN 1176 – EN 1177. Þau eru jafnframt vottuð og tekin út af TUV í Þýskalandi.
Fyrirtækið
Lappset var stofnað 1968 í finnska Lapplandi af Antero Ikäheimo. Frummarkmið fyrirtækisins var að þróa hlýleg og þægileg leiktæki fyrir börn og unglinga. Hann vildi gefa ungu fólki færi á að leika sér að tréleikföngum og tækjum, í stað málmleiktækja, sem þá voru í tísku víðast hvar í Evrópu.
Heilbrigður leikur var ekki einasta markmið Ikäheimos. Hann vildi efla líkamlegt þrek og þol barna og unglinga til að undirbúa þau fyrir lífið. Leiktæki Lappsets voru frá upphafi hönnuð með það í huga, að notendur þeirra myndu eflast að styrk, æfa jafnvægislistir og skemmta sér á sama tíma.
Finnland er land þúsund vatna og tvö þúsund skóga. En tré eru ekki aðeins hlýlegri og þægilegri en málm og stál, heldur umhverfisvænni. Það hafði Ikäheimo í huga þegar í upphafi, á tíma þegar umhverfismál voru síður en svo í brennidepli. Lappset var því grundvallað á gildum, sem enn eru í heiðri höfð og þykja sjálfsögð nú til dags.
Framleiðsla fyrirtækisins er því góðra gjalda verð, ekki aðeins vegna gæða og notagildis, heldur einnig sökum umhverfisástæðna.
Af hverju ættir þú að velja Lappset-leiktæki?
- Lappset er einn af þremur stærstu framleiðendum útileiktækja á heimsmarkaði og hefur hlotið fjölda viðurkenninga fyrir hönnun, gæði, útlit, öryggi og endingu.Lappsat er hannað með það í huga að falla vel að umhverfinu og er litavel samkvæmt því.
- Lappset-vörurnar eru framleiddar í Rovaniemi í Lapplandi. Þar vex furan mjög hægt, aðeins í um 130 daga á ári. Því eru árhringirnir mjög þéttir, viðurinn sterkur og veðurþolinn, eins og íslenskar aðstæður krefjast. Því til staðfestingar býður Lappset tíu ára ábyrgð á viðnum.
Vantar þig frekar upplýsingar?
Heimasíða Lappset er mjög virk og gagnleg. Þar er hægt að fá allar helstu upplýsingar um samsetningu, öryggissvæði, myndir, teikningar, video, og fleira og fleira.
En ef þú finnur þar ekki fullnægjandi svör við spurningum þínum, geturðu leitað til okkar í síma eða með tölvupósti.
En hvernig kem ég leiktækjunum upp? Er þetta ekki mjög erfitt?
Jóhann Helgi & Co ehf býður upp á ráðgjöf, uppsetningar og viðhaldssamning á Lappset leiktækjunum.