Leiktæki Leiktæki

Heildarlausnir fyrir
leik-, íþrótta- og útisvæði

Vandað úrval leiktækja og útileiktækja fyrir leikskólalóðir, skólalóðir og leiksvæði. Við aðstoðum sveitarfélög, skóla, leikskóla, verktaka og aðra verkkaupa við að skapa örugg, vönduð og endingargóð útisvæði.

Frá ráðgjöf og hönnun til jarðvinnu, uppsetningar og lokaafhendingar.

Jóhann Helgi & Co, reynsla frá árinu 1990.

Allt frá hugmynd að lokaafhendingu

Ráðgjöf og hönnun

Við hlustum á þarfir þínar og finnum bestu lausnina fyrir þitt verkefni.

Tilboð og áætlanir

Við gerum skýrar áætlanir og greinargóð tilboð.

Jarðvinna

Við sjáum um alla jarðvinnu og undirbúning á svæðinu.

Uppsetning

Reynslumikið uppsetningarlið sér um faglega og örugga uppsetningu.

Öryggi og gæði

Allar lausnir uppfylla ströngustu öryggisstaðla og kröfur.

Lokaúttekt

Við skilum verkinu fullbúnu og tilbúnu til notkunar.