Í stuttu máli má segja, að Stadia Sports geti útvegað nærri því allan útbúnað sem þarf til að reka íþróttavelli eða íþróttahallir. Fyrirtækið framleiðir öll áhöld til frjálsra íþrótta og fimleika, en einnig mörk fyrir handbolta og fótbolta, körfur, ásamt útbúnaði fyrir flestar tegundir íþrótta, bæði hefðbundinna og staðbundinna. Stadia Sports framleiðir einnig tæki fyrir líkams- og heilsurækt.
Stadia fagnar nú 25 ára afmæli sínu og býður af því tilefni upp á enn ítarlegri vörulista en áður. Jafnframt ítrekar fyrirtækið fyrri loforð um viðhald og eftirfylgni. Frjálsar íþróttir og margt fleira, eins og sjá má á heimasíðu fyrirtækisins.
Ítarlegri upplýsingar er hægt að nálgast hjá okkur hjá Jóhanni Helga & Co, til dæmis með tölvupósti, eða á heimasíðu Stadia. |







