Upphaf Berliner Seilfabrik má rekja aftur til ársins 1865, þegar stofnað var fyrirtæki til að annast hönnun og framleiðslu á sérstökum köðlum fyrir lyftuiðnað Berlínar. Frá upphafi var vandað til verka og upp frá því hefur Berliner Seilfabrit og forverar þess haft ótvírætt forskot á evrópska keppinauta sína í framleiðslu kaðla og skyldra afurða.
Klifurkaðlar voru fyrst þróaðir hjá Berliner-Seilfabrik fyrir rúmlega 40 árum síðan og allar götur síðan hefur fyrirtækið verið í fararbroddi á því sviði. Öryggi hefur verið aðalsmerki fyrirtækisins og ekki veitir af, þegar öryggi og heilsa barnanna okkar er í húfi.
• vönduð • sterk • endingargóð • skemmtileg • vinsæl Gjörið svo vel og kynnið ykkur framleiðslu fyrirtækisins á heimasíðu þess, eða hafið samband við Jóhann Helga & Co í síma eða með tölvupósti.
|






