Hahn Kunstoffe sérhæfir sig í framleiðslu á plastgirðingum, þiljum, bekkjum og öðrum slíkum varningi. Einkunnarorð fyrirtækisins eru endurvinnsla, en hráefni til framleiðslunnar eru að jafnaði endurunnin.
Fyrirtækið er starfrækt við Hahn flugvöll í Þýskalandi, en þangað koma fjölmargir Íslendingar í hverjum mánuði.
Jóhann Helgi & Co flytur m.a. inn frá Hahn skemmtilegar plastþiljur, 2.8 að þykkt, ýmsar lengdir, litir grátt, brúnt og grænt.
GÆÐAVÖRUR ÚR ENDURUNNU PLASTI
• Pallaefni
• Stíuklæðningar
• Girðingastaurar
• Útiborð og bekkir
KOSTIR
• Endurunnið plast
• Vatnshelt
• Sýruþolið
• Hrindir frá sér olíu
• Upplitast ekki
• Þægilegt viðkomu
• Skepnur naga ekki
• Úrval lita