Starfsemin
Starfsemi Jóhanns Helga & Co fer að stórum hluta fram gegnum síma og tölvur. Að mestu er um pöntunarkerfi að ræða en algengustu vörur eru að jafnaði til á lager. Reikna má með 2-4 vikna afhendingarfresti á pöntunarvörum.
Megin áhersla Jóhanns Helga & Co er að fólgin í því að geta boðið upp á heildarlausnir og lausnaleit fyrir viðskiptavinina.
- Meðal annars býður fyrirtækið upp á leik- og sportsvæði af ýmsum toga, s.s. innréttingar fyrir leikskóla og yngra stig grunnskóla og útileiktæki fyrir skóla, leikskóla og önnur leiksvæði.
- Flest fyrir sundlaugar, s.s. frauðleiktæki, rennibrautir, innréttingar o.fl.
- Útiæfingakerfi eins og til að mynda æfingastöðvar við göngustíga eða sundlaugar. Aðstöðu fyrir boltaíþróttir s.s. sparkvelli og körfuboltavelli.
- Girðingar, sæti o.fl fyrir íþróttaleikvanga.
- Aðstöðu fyrir jaðaríþróttir s.s. hjólabrettarampa. Einnig fjölmargt sem eykur á yndi fólks sem iðkar útivist, s.s borð og bekkir, skrúðgarðaskýli og fleira.
Einnig býður fyrirtækið upp á heildarlausnir fyrir garða og torg, s.s sorptunnur, reiðhjólagrindur og –skýli, stubbahús, strætóskýli og fleira. Fjölbreytnin er því orðin mikil og enn bætist við.
Nýjasta sportið sem Jóhann Helgi & Co hefur snúið sér að því að þjónusta, er hestasportið. Reyndar gagnast sú vörulína að sjálfsögðu fleirum en hestamönnum, s.s. bændum.
Síðan bjóðum við sauðfjárbændur velkomna í viðskiptamannahópinn en þeir kaupa nú í stórum stíl hjá okkur plastefni í fjárhúsgólfin hjá sér.