Dynamo hefur framleitt hágæða leiktæki fyrir born og unglinga í yfir fimmtán ár og hefur verið í fararbroddi í hönnun nýrra tækja. Það á sérstaklega um snúnings- og klifurtæki, sem hafa borið hróður fyrirtækisins víða um heim, ekki síst hið fræga Biggo Swing.
Þó það sé gott og gilt að framleiða sömu gömlu tækin ef þau virka og skila árangri, en Dynamo einsetur sér að hafa alltaf upp eitthvað nýtt og spennandi að bjóða.
Ef þú ert að leita að öruggum og saklausum ævintýrum fyrir börnin þín, má vel vera að Dynamo geti komið þér á óvart.
Jóhann Helgi & Co hefur aðallega flutt inn hin glæsilegu klifurnet frá Dynamo, t.d. stóru, flottu pýramídanetin.
Notkunarmöguleikar:
- Fyrir grunnskólaleikvelli
- Fyrir leikskólavelli
- Fyrir almenn leiksvæði
Kostir Dynamo leiktækjanna:
- Vönduð
- Sterk
- Endingargóð
- Skemmtileg
- Vinsæl
Við mælum eindregið með, að fólk skoði hina glæsilegu heimasíðu Dynamo eða leiti frekari upplýsinga hjá okkur hjá Jóhanni Helga, annað hvort í síma eða með tölvupósti.