Reykjavík 11.01.2008
Til þess sem málið varðar.
Undirritaður hefur unnið sem landslagsarkitekt hjá VSO ráðgjöf síðan í ágúst 2007.
Á tímabilinu 2001-2007 bjá ég í Danmörku þar sem ég lærði mitt fag. Samtímis starfaði ég í fjögur ár hjá garðyrkjufyrirtæki (anlægsgartnerfirma) sem útfærði smærri og stærri verkefni fyrir einkaaðila, fyrirtæki og hið opinbera. Í hálft annað ár var ég í hlutastarfi hjá Vej og Park í Kaupmannahöfn. Áður en ég hóf námið hafði ég 7 ára starfsreynslu í garðyrkju (anlægsgartner) bæði hjá öðrum og sjálfstætt.
Ég hef þekkt til Jóhanns Helga & Co frá stofnun fyrirtækisins. Fyrirtækið varð snemma leiðandi í útileiktækjum og hefur haldið þeirri stöðu á þeim markaði síðan. Stofnandi fyrirtækisins hefur starfað sem garðyrkjumeistari (anlagsgartner) og stýrði þá mörgum stórum og eftirtektarverðum verkefnum. Hann hefur orð á sér fyrir að vera sérlega duglegur og heiðarlegur maður.
Haustið 2007 vann VSO ráðgjöf að fremur stóru verkefni fyrir Reykjavíkurborg. Í sambandi við það leituðum við að ákveðinni vöru sem kynna skyldi fyrir embættismönnum borgarinnar. Leitað var að vöru sem leysa skyldi af hólmi aðra og dýrari vöru og aðferð. Eftir ýtarlegar samræður okkar í milli um hvar þessa vöru væri mögulega að finna, hvaða eiginleika hún hefði, hvað hún eiginlega héti, o.s.frv. höfðum við samband við Jóhann Helga & Co. Okkur var strax tekið vel og við fullvissuð um að þetta yrði fundið út fyrir okkur. Það leið aðeins einn vinnudagur, þá hafði einn af starfsmönnum Jóhanns Helga & Cosamband aftur með allar nauðsynlegar upplýsingar um vöruna og framleiðandann. Nokkrum dögum seinna vorum við komin með þrjú sýnishorn í hendurnar. Þetta kallar ég súper þjónustu!
Síðan höfum við verið í stöðugu sambandi við fyrirtækið, þar sem okkur hafa verið kynntar þær vörur sem það býður upp á. Þjónustan er og hefur verið afar fagmannleg en á sama tíma persónuleg. Við fáum kynningarefni sent eða afhent persónulega hratt og örugglega þegar um það er beðið. Efnið er lagt fyrir á hlutlausan hátt hvað framleiðandann varðar. Gæði hverrar vöru eru kynnt og útfrá landslagsarkitektins óskum eru kynntir fyrir okkur valmöguleikar. Þetta gerir að við getum alltaf valið þá vöru sem hentar best í tilviki hvers verkefnis. Það tryggir gæði í okkar vinnu og að við getum tekið upplýstar ákvarðanir.
Það hefur verið afar ánægjulegt að eiga viðskipti við Jóhann Helga & Co og ég efast ekki um að sú ánægja á aðeins eftir að vaxa. Fyrirtækið er þekkt á íslenskum markaði og er leiðandi útileiktækjum og vörum fyrir stræti og torg og hefur traust orðspor. Hjá fagfólki á Íslandi er fyrirtækið þekkt fyrir að bjóða heildarlausnir, breitt úrval af gæðavörum og er einstakt í sinni röð.
Guðmundur Hrafn Arngrímsson
Landslagsarkitekt
VSO ráðgjöf
gudmundurh@vso.is
Umsagnir viðskiptavina
14.01.08
Þetta kallar ég súper þjónustu!



