Á árinu 2007 setti fyrirtækið upp RHINO-RAMPS hjólabrettarampa víða um land, s.s. á Álftanesi, í Fossvogi, við Árbæjartorg, á Klambratúni, við Grunnskólann í Þorlákshöfn og á Egilsstöðum. RHINO-RAMPS merkið er þekkt í brettabransanum fyrir gæði og skemmtilega möguleika. Þeir sem eru að velta fyrir sér að setja upp ramp og vilja kanna þá möguleika sem eru í boði, geta sent okkur upplýsingar um stærð svæðis (u.þ.b. mál á lengdxbreidd) og þá krónutölu sem rampurinn má kosta. Við látum svo Wim Lennarts hjá RHINO-RAMPS teikna upp nokkra skemmtilega möguleika. Hann er fyrrum Belgíumeistari í skeiting á línuskautum og skilur hvernig brettafólk hugsar!



